31.1.06

Það er svo gaman að fara í heimsókn til ömmu.
Hún segir alltaf "Ertu að hverfa barn?" og svo gefur hún manni pönnsur með rjóma og kók.
Annars þá er það orðið opinbert að ég er komin til íslands, ég lét voða fáa vita hvenær ég kæmi og sé ekki eftir því, enda vildi ég bara vera heima hjá famelíunni og venjast nýju fólki og eyða tíma með því gamla.
Það er ekki mikið hægt að tuða yfir nýja fólkinu, voða almennilegt, nokkuð geðgott og skemmtilegt. Ekki eins hræðilegt og ég hélt það yrði. ;-)
Ég er líka búin að komast að því að það ER hægt að lifa á skyri og vatni. Allavega getur það verið uppistaðan í fæðunni hjá manni, bara svo lengi sem að maður étur kúskús og nings af og til.

Langaði bara að segja ykkur að ég væri á lífi.

Lifið heil

3 ummæli:

Inga Rós sagði...

heyrðu heyrðu...það er nú líka búið að vera bragðarefur og bombur ;)

Nafnlaus sagði...

gott hjá þér að vera smá heima með famelíunni elskan:) en eigum við að reyna að gera eikvað á sunnudaginn með Lindunni ?láttu mig vita:)

Nafnlaus sagði...

Já og eg er að vona að ég muni eiga þi á föstudaginn..ef u langar enn að koma..þar sem litla kellan (ég) á afmæli á laugard..;)

-KarenHelga