Þvílíka úrhellis rigningin sem er búin að vera núna í dag. Hitarigning svokölluð, en það er búið að vera þvílíkt heitt og rakt í dag. Kannski er fellibylurinn Kristín Alma að fara að skella á, það kæmi mér nú ekkert á óvart, því að skapið hefur verið þannig í dag.
En yfir í aðra sálma, Ef að ég vissi ekki betur þá myndi ég halda að ég væri komin 7 mánuði á leið. Ég er alltaf að fá svona Weird crawings eins og versta ólétta kona. Þetta er stórdularfullt mál, um daginn þá varð ég hreinlega bara að fá sólblómafræ, eins undarlega og það hljómar, stökk útí Wal-Mart og keypti mér sólblómafræ í poka á 99 cent. Át hann upp til agna áður en að ég var komin hálfa leiðina heim. Skil þetta ekki, því að ég hef aldrei smakkað sólblómafræ áður...frekar skrýtið mál. Alltaf að fá einhverja svona crawing í eitthvað, og alltaf eitthvað ótrúlega skrýtið, eins og í hádeginu í dag langaði mig bara alltí einu alveg svona rosalega mikið í kalkúnaálegg, allsbert, ekki í brauði eða neinu. Já þetta er skrýtið, en samt í lagi á meðan að þetta er svona í hollara lagi.
Ég sé svolítið eftir því að hafa ekki skráð mig til leiks í íslenska piparsveinin. En ég fer bara eftir nokkur ár, eða verð fyrsta piparsveinkan. Annars fæ ég alltaf kjánahroll bara við tilhugsunina að það sé komin íslenskur piparsveinn, hugrekkið í fólkinu sem að þorir að taka þátt í svona dæmi á Litla íslandinu okkar, þar sem að allir þekkja alla og Hér&Nú hikar ekki við að búa til fréttir um þig ef að þú hefur fengið 5 mínútna frægð. Ég býð spent eftir að love boat hefji göngu sína, það verður nú meiri sýran.
Segjum þessu lokið að sinni, vil minna á nýtt og endurbætt Kastljós, strax eftir fréttir mánudaginn 10 október, verið þið sæl
(ef að ég tek ekki við af pabba í framtíðinni þá veit ég ekki hvað, djöfull næ ég þessu vel :))
3 ummæli:
hahaha Fellibylurinn Kristin Alma! hljómar ógnandi!:D
hefurðu séð íslenska batchelorinn? jesus þetta er svo leiðinlegt sjónvarpsefni að það er alveg ágætt! horfði á þetta og mer langaði nánast að kirkja þáttastjórnandann, þvi mer fannst hann svo pirrandi! .. og afhverju heitir þetta ekki "leitin af íslenska PIPARSVEININUM" - meira hvað við náum alltaf að gera hlutina AAAÐEINS hallærislegri en þeir þurfa að vera;) haha
en ja kristin min, eg fór uppá skrifstofu i skolanum i dag, er buin i prófunum 15 desember:) svo ... eg nu bara spyr, hvernig leggst koma min til þin 16 desember?:)
Hávdí...koma Lindu til Kristínar leggst alla vega vel í mig þann 16. des. Og um stjórnanda piparsveinaþáttarins vil ég bara segja, að Jón Ingi er gamall vinur minn og er alveg ágætur gaur....er bara greinilega í sparihlutverki í þáttunum. Kemur ekki vel út....hehe
And you are??
Skrifa ummæli