En hann var sem sagt að hjálpa ömmu að finna hótel á Lanzrote eða hvað það nú heitir, og gaf ömmu bara upp eitthvað nafn á hóteli og sagðist ætla að hjálpa henni að finna vefsíðuna seinna. En amma var nú bara ekki róleg og hringdi auðvitað í elsta og besta barnabarnið sitt á SKYPE og bað hana um hjálp við að finna vefsíðuna fyrir þetta hótel. Ég spyr auðvitað um nafnið á hótelinu og slæ því bara inní google.com, en það var greinilega eitthvað vitlaust og eina sem að ég fann var 2 stjörnu hótel, sendi ömmu linkinn á MSN og hún kíkir á þetta og segir svo: Spurðu hann frænda þinn hvort að hann ætli virkilega að senda okkur gömlu hjónin á 2 stjörnu hótel! Ok, ég geri það, þá skellir hann (móður)bróðir minn þessu framan í mig að mín kynslóð eigi ekkert að vera netinu, því að það eina sem að við getum er að finna Klám og 2 stjörnu hótel. Svo sendir hann mér Linkinn á hótelið sem að amma og afi eiga að vera á og það var þá 4 stjörnu plús hótel sem að þau verða á núna í byrjun nóvember. Gott að þetta leystist og eftir að þetta var komið í ljós þá töluðum við (móður)bróðir minn og amma saman í dágóðan tíma (hann í frankfúrt, amma á íslandi og ég í ameríku) saman á skype, ég kenndi ömmu að gera copy/paste á msn og svo spjallaði ég við alla fjölskylduna mína á skype + (móður)bróðir minn þar sem að mútta og co. voru komin til frankfúrt til hans. Ohh það var svo gott að tala við þau, alveg ótrúlega nice, og ég get ekki beðið eftir að fara heim og sjá þau og knúsa!
Eyjólfur minn vildi nú mest lítið tala vð stóru systur sína, hann var reyndar hálf ringlaður greyið, búin að vera í bíl í 12 tíma (keyrðu frá DK til Germany) og kemur svo heim til Gumma frænda og stínan hans bara í tölvunni. Minn maður var nú ekki alveg sáttur við þetta og sofnaði í fanginu á mömmu meðan hún var að tala við mig, þannig að ég er annað hvort með svona sefandi röd eða bara svona leiðinleg.
Jæja, eftir þetta spjallaði ég við hann föður minn á MSN sem að sagði mér að hann hafi verið að taka þetta líka bráðskemmtilega viðtal við uppáhaldsmanneskjuna okkar, hana Silvíu Nótt. En ég og Pabbi vorum líklega eina fólkið á íslandi sem að fíluðum hana frá byrjun, og það voru sko ekki jafn margir sem að gerðu það, því miður. En ég mun þokkalega horfa á þetta á morgun, mæli með að þið gerið slíkt hið sama.
Jæja, svo segir sá gamli mér að senda nú línu á hana ömmu mína (föðurömmu) og ég segi já ekkert mál, svo kemur bara e-mail adressa uppá skjáinn. Þannig að ég ætti ekki að senda henni línu með svona póstapósti heldur e-mail. Oh, well ég gerði það og þá er bara að bíða og sjá hvort að ég fái svar..hoho
Eruð þið búin að sjá eitthvað minstur í þessari færslu? Það er nefninlega tæknin sem að er að tröllríða öllu, eins og forsetinn sagði í einhverri ræðu um daginn, það verður alltaf erfiðara og erfiðara að fylgjast með fréttum, það eru fréttir á netinu, í sjónvarpinu, útvarpinu, símanum þínum og bara allstaðar. Svo getur maður sent tölvupóst, talað á skype milli landa án þess að borga fyrir það og spjallað í rauntíma við einhvern sem er í Kína og maður sjálfur í USA á MSN. Finnst þetta svo magnað fyrirbæri, ég held að ég myndi ekki mikið lifa af dvölina í ameríku ef að ég hefði ekk skype, MSN og webcam. Tala nú ekki um það að þegar að ömmur mans og afar eru farin að vera svona nútímaleg, meina ég á reyndar óvenju tæknileg ömmu og afa sett sem tala öll 2-3 tungumál, skrifa sms og tala við mann á MSN og skype, en samt, alveg merkilegt fyrirbæri (tæknin sko, ekki amma og afi)
Þetta er ekkert smá ómerkileg fræsla, en ég skal kannski blogga fljótlega um eitthvað annað en ömmu, afa og tölvuna.
Svona í lokin fáið þið einn alltof hot gaur, enjoy...
Shine on Ryan, Shine on!!
5 ummæli:
heheh Loksins þegar u bloggar svona helvíti langt..þá er það frekar pointless en MJÖG svo gaman að lesa..alltaf gaman að lesa ruglið í þér sama um hvað það er..;) hehehe
En láttu mig vita um leið og u veits ekkað hvenær u kmr til mín hon..;)
-Karen Helga
Stína mín,ég er mjög sátt við hvað þer er mikið hugsað til okkar, ömmu og afa settanna. Við býðum öll spennt eftir að fá að sjá þig. Kv. Amma Stína
P.s. það er nú mikið þér að þakka hvað við erum tæknileg
hahaha las þetta blogg og skildi ekki helminginn...en já skemmtilegt það sem ég skildi :D
Fyrir mér er blogg, blogg og það þarf hvorki að vera djúpt eða mikið ígrundað, ( eins og þú hefur séð á minni síðu ) bolggaðu bara gaman að heyra frá þer
mikið vildi ég nú að afi minn væri svona tæknilegur! kunni á msn;D hehe en kallinn kann nú að leggja kapal i tölvunni:D haha en ég kemst ekki til DK því eg er í prófum.. enhefuru eikvað ákv. hvenær þú kemur á klakann? the hottest place on earth;D
Skrifa ummæli