3.10.05

Hvurnig er það, drepast þessar helvítis moskító flugur ekki? Þær eru ennþá að éta mig eins og það sé bara alveg sjálfsagður hlutur. En vonandi fara þær að hætta þessu blessaðar, því að ég er öll útí örum eftir þessi bit, sem er ekki vinsælt.
Það er svo mikið af kvikindum hérna að það hálfa væri alveg hellingur. Flugurnar, engispretturnar, köngulærnar, kribburnar og allt þetta drasl er ógeð. Nú sannast líka enn og aftur kenningin að það sé ALLT stórt í Ameríku, því að þessi Helv... kvikindi eru HUGE.
Svo eru mýs hérna, en þær eru sauðmeinlausar greyin. Um daginn fann ég skjaldböku í garðinum eins og ég var buin að segja ykkur, það eru íkornar útum allt, ég var næstum búin að pissa í mig þegar að ég var að fylgja April i skolan einn morguninn, þegar að það kemur allt í einu bara stærðar snákur rétt við lappirnar á okkur...OJ barasta. Það var þvottabjörn hérna í garðinum líka um dagin og svo núna rétt í þessu var ég að spotta eina risa könguló á gólfinu!
Svo að það er nóg af gæludýrum hjá okkur - Bara misskemmtileg, ég er eiginlega bara mest hryfnust af gullfisknum hennar April.
En nú fer að styttast í heimkomu hjá froskinum, rúmlega tveir mánuðir í langa ferðalagið mitt, og langþráða fríið. Það verður svo gott að komast heim, fá mömmu mat, hitta vini og fjölskyldu og hafa nice.
Ég er búin að hafa uppá einni íslenskri stelpu hérna og við ætlum endilega að fara að drífa okkur að hittast og skella okkur í bíó eða eitthvað skemmtilegt. Það verður fínt að hitta einhvern annan í sömu sporum.
Ég er annars komin í frí, svo að það er nokkurskonar föstudagskvöld hjá mér, þannig að ég ætla að leggjast uppí sófa með tásurnar uppí loft og horfa á sjónvarpið.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já, farðu bara að koma til okkar hérna megin hafsins, í litlu kóngulórnar og dauðu broddgeltina. Eitt sem er mjög gott við þetta dýralíf hjá þer
þú þarft ekki að fara í ZOO svo árum skiptir héðan frá, hahah

Nafnlaus sagði...

nohh..fannstu eina íslenska..;) æði..:p en lattu mig vita þegar u ert buin að versla etta thing fyrir mig..;) víí..hlakka til..(K)

-KarenHelga

Nafnlaus sagði...

Hallo... Endileg hittu tessa islensku eg er viss um ad tu munir eiga i erfidleikum med ad tala islensku vid hana tvi tegar eg hitti vinkonu mina fra islandi kom ekkert nema enska upp úr mer!! En tetta mer dyrinn fynnst ter tetta ekki pirrandi mig langar bara ad vera med riksugu a mer allan daginn og safna tessum kvikinum tar en mjog skemmtileg blogg hlakka til ad lesa tad naesta:D og tegar eg kem heim verdum vid ad hittast tad er ordid alltof langt sidan!

Nafnlaus sagði...

Dúllan mín, þú varst nú ánægð með kvikindin, allavega voru flugurnar í glugganum þínir helstu leikfélagar þegar þú varst lítil. Hlakka til að sjá þig. kv. amma

Nafnlaus sagði...

æjj dúllan min... endulega farðu að hitta þessa islensku!:) svo þú ahfir nú eivkað félagslíf :* en mikið hlakka ég til aðsjá þig.. er strax komin með smá auka pening.. þetta ætti nú alveg að hafast elskan:D dont worry=D þú mátt búast við mér=D

Nafnlaus sagði...

Elsku músskatið mitt. Ég verð að senda þér töflurnar sem að ég tek til þess að halda pöddunum frá, þær virka og allt. Ég er einmitt með mörg ör eftir det dejlige danske sommer. Annars er þetta rétt hjá ömmu Stínu...þær áttu meira segja nöfn flugurassgötin....

Nafnlaus sagði...

haha kristin min ertu farin að leita uppi íslendinga þarna i amerikunni;) þu ert nu meiiiriii kjéllingin!:D