20.10.05

Ég var með ljótuna á háu stigi í gær og það ekkert smá. Ákvað svo að gera eitthvað í þessu og tók andlitið í hreinsimeðferð og málaði mig svo í tilefni dagsins. Fór svo í bæinn og verslaði ýmislegt lífsnauðsynlegt, eins og föt, Ben and Jerry's og sléttujárn. Náði líka að klára að kaupa jólagjafir handa öllum systkinum mínum, hundinum og henni April, ekki nóg með það heldur gat ég líka ákveðið hvað ömmu og afa settin fá og danmerkurforeldrar mínir. En á reyndar eftir að finna eitthvað fallegt fyrir hann föður minn, og það er sko ekkert lítill hausverkur skal ég segja ykkur, ef að þið eruð með einhverjar uppástungur þá endilega látið mig vita.
Annars þegar að ég kom heim úr bænum ákvað ég að prufukeyra sléttujárnið og sléttaði þar með á mér hárið í fyrsta skipti síðan fyrir hádegi þann 22. júní. Þannig að ég er búin að vera með endalaust villt hár í allt sumar, en það er svosem allt í góðu bara, er allavega með slétt og flott hár núna. Í næstu viku ætla ég svo að reyna að skella mér í klippingu, eða reyndar bara svona "trim" legg ekki í þessar hárgreiðslukellur hérna í USA, allavega ekki eftir að Karen Helga kom heim úr klippingunni hérna um daginn, með hárlit á ólíklegustu stöðum. Svo að ég fer bara til hennar Líneyjar minnar, þegar að ég kem til DK, treysti henni algerlega fyrir hausnum á mér.
Það er svo mikið af sjónvarpsþáttum í gangi hérna í Ameríkunni núna að ég er gjörsamlega búin að missa allt vit, eða svona allt að því. Ég er löngu búin að gleyma hvaða þættir eru á hvaða dögum, hvaða stöð og klukkan hvað og ég sem hélt að ég væri með þetta allt undir kontról.
En það eru annars 6 vikur og 5 dagar þangað til að ég kem til Danmerkur og eitthvað aðeins lengra í að ég komi í stressið á Íslandi. Ég er hætt að sofa ég hlakka svo til að koma heim :)

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HAHAHHA..ég SPRAKK úr hlátri "hárlit á ólíklegustu stöðum" jaa..en hárið á þér ER slétt..alveg unbeliveble slétt..mannstu ekki hvað ég og hann bróðir minn yndilslegi sögðum?:O heheh

-KarenHelga

Nafnlaus sagði...

hvað vilt þú í jólagjöf elskan:) hlakka til að sjá þig hérna:) verðuru hér um jólin eða í DK? *PLIS COME TO HELGA*

Kristín Alma sagði...

hehe, Karen Helga mín, þú varst með háralit á ólíklegustu stö'um og mamma þín líka!
En nei hárið á mér er farið að liðast mjög mikið, vegna þess að ég er ekki búin að fara í klippingu lengi. en ég man eiginlega ekki hvað þið sögðuð, allavega ekki svona í fljótu bragði..:)

Helga: dno, veit ekki hvað er ´´i boði þarna á klakanum ;) hehe, held að ég verði í DK, eða þá að ég komi samferða lindu 23 des...

Nafnlaus sagði...

bíddu,bíddu.....hárið á þér er allt annað en ekki slétt krútta litla. Heiður klippari signaði sig hægri vinstri þegar að við mættum á svæðið hér áður fyrr því að þú hafðir sléttasta og stífasta hárið evver....
Alveg eins og hann pabbi þinn.

Kristín Alma sagði...

móðir, það var þá, nú eru breyttir tímar og breytt hár...þangað til að ég fer í klippingu :D

Nafnlaus sagði...

Þú ert alveg milljón sæta:)

Sá viðtalið í gegnum vefinn með Silvíu og ómægod hvað það var fyndið .. meira segja Emman fór að hlæja ;)

.... knús úr mosanum .... :)

Nafnlaus sagði...

en ég man eiginlega ekki hvað þið sögðuð, allavega ekki svona í fljótu bragði..:)
? hvað meinaru.? heheehe

-KarenHelga

Nafnlaus sagði...

jaa..ég og einar petur..hehhe við bara sögðum að u værir með klikk slétt hár..og Einar Pétur sagði það meira að segja..hehehe

-KarenHelga

Kristín Alma sagði...

HAHA!! þú ert svo mikill strumpur!
já, man reyndar eftir því, en það er orðið mjög WILD núna..:Þ