þá er ég búin að horfa á báða þættina af "leitinni" og ég er ennþá með kjánahroll. Almáttugur hvað þetta er halló, en eflaust þá venst þetta vel. Maður ber þessa þætti jú ósjálfrátt saman við Amerísku þættina og er þar af leiðandi mjög fljótur að dæma að þetta sé bara ömurlegt og allt það.
Kynnirinn þarf að gera eitthvað í sínum málum, ef að hann ætlar ekki allt lifandi að drepa, voðalega leiðinlegur, ætlar greinilega að vera svaka flottur á þessu en það er ekki að takast nógu vel og kemur út eins og hann sé að lesa beint uppúr bók. Svona einskonar sögustund.
En mikið svakalega er piparsveinninn sætur, almáttugur minn, ef að þetta er ekki mín týpa þá veit ég ekki hvað. Þoli nefninlega ekki svona gaura sem að eru appelsínugulir af ljósabekkjanotkun, vagúnpakkaðir inní bolinn sinn og með þrjár dollur af hárvörum í hárinu. (Sbr. Ásgeir Kolbeins)
Þannig að mér lýst bara vel á þennan Steina.
Annars er ennþá rigning hjá okkur hérna í Ameríkunni. Í gær rigndi svo mikið að froskarnir voru farnir að leita sér skjóls hérna á útidyratröppunum, og engin smá flikki. Ég var auðvitað mjög glöð, því eins og glöggir sjá þá er ég svoddan froskur í mér. Það gekk samt ekki vel að reyna að ná þeim og þeir hoppuðu bara í burtu.
Vonum nú að þessi rignin fari að ganga yfir svo að það verði hægt að fara út og gera eitthvað. Svo eru líka að koma gestir hingað á morgun, en það eru frændfólk "mömmunar" þau verða hérna alveg framm yfir Hrekkjavöku svo að það verður svaka stuð og manni ætti ekki að leiðast á meðan.
5 ummæli:
Ohh..sko Perfectly sammála með þáttastjórnandann..eins og hinn versti sögumaður..! og svo í sambandi við þátta NAFNIÐ..við erum íslensk og allir í þáttunum eru íslenskir..afhverju þá Íslenski bachelorinn..hann er ÍSLENSKUR PIPARSVEINN..! svona dót fer í mínu fínustu taugar..!!
En takk fyrir seríuna ástin mín og vona að þér líki gjöfin ;) hehe
-KarenHelga
Einmitt!! af hverju íslenski bachelorinn!! meira að segja buið að bæta við íslenskri endingu á þetta...:P heimska fólk!
við mamma þín erum búnar að lova þig, svo vertu ekkert að sverma fyrir þessum piparsveini, þó hann sé pínu frægur.
við völdum sætann, hresann, góðann, og mjöj skemmtilegan dreng handa þér svo nu skalt du skund dig
Mér er nú alveg saman þótt að hann sé frægur, það skiptir engu máli, en sætur er hann, strákurinn :)
Eins gott að þessi piltur sem að þið eruð búnar að ákveða fyrir mig sé fallegur, að innan og utan..;)
Reyni að flýta mér eins og ég get, þarf líka að koma í heimasókn og sjá Spriklu Sól...:Þ
Er ekki enn farin að sjá "íslenska piparsveininn" Þarf að reyna að sjá næsta þátt svo ég geti tekið út smekk þinn á gæjunum. Vonandi ekki mjög amerískur í útliti svo það sé öruggt að þú komir heim. Hafðu það gott kerlingin mín
Amma Stína
Skrifa ummæli