Endur fyrir löngu, í landi langt langt í burtu, rakst falleg, sjálfstæð og sjálfsörugg prinsessa á frosk þar sem hún sat og velti vöngum yfir vistfræðilegum álitamálum við bakka ómengaðrar tjarnar á fagurgrænu engi nálægt kastalanum sínum.
Froskurinn stökk upp í kjöltu prinsessunnar og sagði: Fagra frú, ég var eitt sinn gjörvilegur prins en grimm norn lagði á mig álög. Ef þú smellir á mig einum kossi mun ég aftur verða að þeim snotra prinsi sem ég raunverulega er. Þá getum við, mín kæra, gifst og stofnað heimili í kastalanum þínum.
Þú getur framreitt málsverði fyrir mig, þvegið klæði mín, alið börnin mín og fundið til þakklætis og hamingju um alla eilífð.
Sama kvöld sat prinsessan yfir málsverði sínum - léttsteiktum froskalöppum - og hló lágt með sjálfri sér: Ég held nú fokking síður!
Hmm, froskahlið mín grætur yfir þessari sögu, KristínaÖlmuhliðin skellihlær !
5 ummæli:
BWAHAHAHAHAHAHA GÓÐ!!!! :D
HAHAHAHAHA..þetta er baar BEST..! made my evening..!=D
-KarenHelga
ég ætla mer að stela essu hja þér og setja hja mer..;) takk;* hehehe
-KarenHelga
Hahahhaa... góður :D
Ég var bara orðin spennt á tímabili ;) HAHA
- Brynja Rún
www.blog.central.is/19-88
Þessi var góður. Hihi!!
Gott að sjá að húmorinn er alltaf í lagi. Hlakka til að sjá þig Stína mín
amma Stína
Skrifa ummæli