3.6.05

Vika til stefnu og fiðrildin í maganum farin að gera vart við sig.
Ég er svo spennt að ég titra á höndunum, og held reyndar að þó að ég sé mjög spennt að koma til íslands og vera hjá ykkur öllum í nokkra daga, að þá eru fiðrildin og spenningurinn mest vegna þess að ég er svoldið mikið að fljúga útí óvissuna núna eftir ca 18 daga. Stundum þá hugsa ég: Hvað í fjandanum er ég að pæla með að vera að fara eitthvað til Bandaríkjana og vera hjá fólki sem að ég þekki sama og ekki neitt í allt sumar. En það er bara á góðan hátt, því að ég veit að þetta verður svo gaman og þetta er svo mikið tækifæri fyrir mig að gera eitthvað svona.
Ég má ekki segja við mömmu lengur "jeij það er bara vika þangað til að ég legg í'ann" því að hún segir bara við mig til baka "mig langar ekki einu sinni að hugsa um það" og mér fannst það bara krúttlegt að heyra hana segja þetta, því að maður veit að einhver annar en hundurinn á etir að sakna mans...
Það er svo mikið sem að ég á eftir að gera að það er ekki einu sinni fyndið, en ég þarf í alvörunni að fara að skipuleggja mig og byrja að pakka stuttbuxunum og sólgleraugunum svona núna á næstu dögum. Samt finnst mér svoldið fyndið að vera að pakka niður fyrir þessa ferð, þar sem að það verður úlpa, flíspeysa, trefill og síðar nærbuxur fyrir íslandið og svo stuttbuxur, hlírabolir, flipp flopps og sólarvörn númer 20 fyrir ameríkuna.
En jæja, ég er farin aftur að lesa einn bókmenntatexta fyrir dönskuprófið sem er eftir viku. ógeðslegur texti sem að ég er búin að vera að treina að lesa, því að hann er svo viðbjóðslegur, fjallar um kynferðislegamisnotkun barna, sögumaðurinn er misnotarinn! Og þetta ógeð er verið að láta mann lesa til prófs!

3 ummæli:

Kristín Alma sagði...

Svona þegar að ég pæli í þvi, þá held ég að titringurinn í hondunum sé mest vegna þess að ég er búinn að drekka einn og hálfan kassa af pepsíi á einni viku og er ekki búin að fá neitt pepsi í dag...best að fara að fá sér pepsi...

Inga Rós sagði...

hahaha bara farin að fá fráhvarfseinkenni! en já síðar nærbuxur er mjög mikið í tísku hérna á klakanum...sérstaklega undir stuttum pilsum og engum sokkabuxum ;)

hlakka svo til að hitta þig skorpan mín! :D

Nafnlaus sagði...

haha síðar nærbuxur! hehehe... já mjög vinsælt herna!;) hbring them;)ur gonna look soooo nice:P úff... endalaust djam þangað til þú kemur;) grrrrr