30.6.05

Já sæl verið þið, hvað segir folkið á þessum líka ágæta fimmtudegi??
Mikið rétt, ég hef það gott og er búin að vera í 8 daga í ameríkunni og líkar ennþá bara mjög vel, langar ekki neitt að fara heim og kvíði eiginlega bara fyrir að þurfa að fara eftir 5 vikur :( En svona er lífið og ég verð víst að ganga í skóla og þannig, dugar ekki bara að vera au-pair að eilífu.
Anýhú, þá er nú margt búið að gerast hjá mér hérna á þessari einu viku sem að ég er búin að vera hérna. Það er búið að vera geðsjúklega heitt hérna, við erum að tala 35-40 stiga hita og sól, og ég er búin að komast að því að það er eiginlega of mikið, allavega ef að á að gera eitthvað annað en að sitja á rassgatinu og gera ekki neitt, því að það er nefninlega ekki það sem að ég er að gera á daginn hérna. En við reynum að vera inni yfir heitasta tíman, en ég vil helst bara vera inni á daginn.
Í gær var farið með stóðið á tjökkí djís eins og Christian myndi segja, en það er einhver svona krakka veitingastaður fyrir þá sem ekki vita, það var nú aldeilis fínt, svo verður farið aftur þegar að Eva María verður eins árs núna í júlí.
Á sunnudaginn verður farið í vatnagarðinn og svo er 4th of july á mánudaginn og þá verður sko stuð, fólk er að tala um að það verði stærsta show frá upphafi hérna í ár, svo að það ætti nú að vera aldeilis gaman.
Held að það sé ekki neitt meira sem að ég hafi að segja ykkur, ég verð allavega að þjóta, það er að koma nap time, svo að það er einsgott að fara að skunda og setja mjólk í pela...bæbæ

4 ummæli:

Inga Rós sagði...

ohhh djöfull ertu heppin með veðrið...en muhahahaha ég og binni erum að fara á queens of the stone age og foo fighters a-svæði í kvöld :D nei nei...óska að þú værir hérna svo þú gætir komið með! eníveis góða skemmtun þarna úti skorpan mín :*

Nafnlaus sagði...

jæja þá er komið naf á Spriklu eða það er Bergrún Sól. Hlökkum til að sjá þig hvenær sem það nú verður

Nafnlaus sagði...

jæja þá er komið naf á Spriklu eða það er Bergrún Sól. Hlökkum til að sjá þig hvenær sem það nú verður

Nafnlaus sagði...

jæja þá er komið naf á Spriklu eða það er Bergrún Sól. Hlökkum til að sjá þig hvenær sem það nú verður