10.4.05

Klamydíusýkingar jaðra við faraldur í Danmörku


Dönum sem smitast af kynsjúkdómum fjölgar stöðugt og segir yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Álaborg að klamydía sé orðin svo útbreidd í Danmörku að jaðri við faraldur. Segja heilbrigðisyfirvöld að látið geti nærri að tíundi hver danskur unglingur sé smitaður af klamydíu.

Frá þessu segir í blaðinu Nordjyske Stiftstidende en þar segir að dönsk yfirvöld áætli að allt að 50.000 ungir Danir séu með klamydíu. Tveir af hverjum þremur sem greinst hafa með smit eru konur.

Tove Højberg, yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Álaborg, segir við blaðið að yfirleitt þurfi tvo til svo smit berist milli manna og því megi búast við að álíka margir karlar sem konur séu með klamydíu.

Klamydía er megin ástæða þess að dregið hefur úr frjósemi kvenna en erfitt er að kljást við þennan kynsjúkdóm þar sem sýktir átta sig oftast ekki á smitinu sem á þannig auðveldar með að berast milli manna.

Hlaut að vera..danskir unglingar eru eins og kanínur...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

fer klamydia ekki með því að taka eina eða tvær töflur *augabrúnakall* ...

Kristín Alma sagði...

uhh jú kannski ekki alveg svo auðveldlega en það er hægt að lækna hana. En það er sama, þetta er ógeð!!!!!

Inga Rós sagði...

hahaha kristín mín þú verður að fara að passa þig...mátt ekki verða að kanínu 8-) þú verður samt alltaf froskurinn minn ;)