18.4.05

jæja gott fólk, þá er eins gott að fara að dusta rykið af diesel buxunum og Louis vuitton töskunni, því að ég er komin inn í Horsens Handelsskole!
Já daman fékk bréf um það að hún væri komin inní "Versló" Þeirra danamanna félaga minna, svo að það verður í nógu að snúast á næsta ári. Byrja 10 ágúst, svo að ég myndi ekki vera að kvarta yfir stuttu sumarfríi við mig ef að ég væri þið, því að sumarfríið mitt byrjar formlega 17 júní og er búið 10 ágúst. Og ég tek það fram að það er svona 30 stiga hiti hérna í júní, júlí og ágúst...
En ég er annars bara nokkuð sátt við næstu mánuði, London eftir næstum 2 daga, leseferie, sidste skoledag, nokkur próf, Island, USA, Danmörk og nýr skóli...
Hlakka mjög mikið til að byrja í Nýja skólanum og læra svona danskt versló tal, hvernig ætli marmarmotta þýðist yfir á dönsku??

2 ummæli:

Inga Rós sagði...

hahahha já kristín við skulum reyna að fletta upp orðinu marmaramotta en til hamingju krútta :*

Nafnlaus sagði...

til hamingju sæta min=D við reynum að fletta því upp! þetta er nu ekki til í minni orðabók.. en tjahh.. samsett orð.. min segjir marmormåtte;D im so smart u know:D