Ótrúlegt en satt þá hefur bara nokkuð margt gerst síðan að ég bloggaði síðast. Á miðvikudaginn eftir skóla skellti ég mér í heimsókn til Láru. Við náttúrulega tókum eitt af okkar frægu köstum, svo komu Almar og Raggi líka til að hitta Gaua, en fengu okkur svona í kaupbæti. Við skemmtum okkur konunglega til klukkan 11 um kvoldið, og við komumst að niðurstöðu um að ég og Lára eigum ekki að drekka Pepsi, né borða nammi, allavega ekki þýskt dónanammi...
Á miðvikudaginn þá byrjaði ég líka í Fjolmiðlafræði, eða einhverskonar afbrigði af henni, sem er mjog skemmtilegt fag þó að það sé á dönsku og nokkuð erfitt að læra hugtökin en samt rosaskemmtilegt. Við erum búin að vera að vinna með Blaðagreinar og svoleiðis núna. Þessu fagi fylgir líka meiri heimavinna og þess háttar, en það er bara gaman.
Fimmtudagurinn var mjog áhugaverður. Eða þannig, það eina sem að var áhugavert var að Casper bakaði pizzu, og svo borðaði ég pizzu!
Annars gerði ég líka eitt stykki ritgerð á Dönsku, kennarinn var mjog ánægð með þessa frumraun mína í danskri ritgerðarsmíð, og ég reyndar líka.
Svo í dag var ég á leiðinni heim úr skólanum á hjólinu, og var að fara yfir gatnamót sem eru á milli Horsens og Stensballe(ég by í stensballe) var að hjóla á geðveikum hraða yfir götuna á GRÆNUM kalli, og þá kemur bara einhver gamall kall, fer yfir á rauðu og rétt svo nær að snarhemla þegar hann sér mig og klessir á mig með þeim afleiðingum að ég klemmi fótinn á milli bílsins og hjólsins. Svo ætla ég að fara að Hrauna yfir kallinn, neinei flautar hann ekki bara á mig eins og ég hafi gert eitthvað og keyrir í burtu!
Danir eru sko ekki hæfir í umferðinni, en þeir eru nú aðeins skárri á hjólunum belssaðir.
Í kvold er það svo Family guy maraþon heima hjá Almari Kallinum, það verður nú fínt. Smá Chill, vonum bara að ég drekki ekki neitt pepsí...
Eitt að lokum, ÉG KEM HEIM EFTIR TVÆR VIKUR!
7 ummæli:
hvað er málið með danska ökumenn thsss...þú verður nú miklu öruggari þegar þú kemur til Íslands, sem er bara eftir 2 vikur vííííí!! :D
ég er ekki alveg viss sko! þú veist þú, og ásta og kristín farnar að keyra, ekki öruggt umhverfi!!
Eva æði sæði: abb abb abbb...og Evan líka ;) Æfingaaksturinn mættur marr! :D En hva var allt í læ með þig eftir ennan kreisí kall? :S
Kristín: Heyðru vænan, ég er bara mjög góður bílstjóri, en af því að þú ert að koma, þá verð ég bara ekki mikið á ferðinni. En jáá, þessir Danir kunna ekki að gera, þeir ættu bara að halda sig við hjólin. Þetta virðist vera of erfitt fyrir þá;) Sjáumst eftir aðeins 2 vikur skvísan mín. Kossar frá klakanum!!
hehehe! já ég gleymdi evunni!! Suss þessir danir sko, þeir ættu í alvorunni ekki að keyra bíla, ég var í rétti, Hjólrei'armenn eiga ALLTAF RÉTTINN hérna!! en það er alltílæ með mig, ég fékk bara sjokk og meiddi mig pínu, en ekkert alvarlegt.
ég er nú ekki einu sinni búin að fara í ökutíma svo þú sérð mig örugglega ekki á götunum á næstunni hehe :Þ
Inga mín, mér er mjog létt vð þessar fréttir:P hehe nei bara djóka
Skrifa ummæli