Ég hef misst hæfileikan til að blogga! Það finnst mér hræðilegt, því að þetta er uppáhalds íþróttin mín fyrir utan að kommenta.
Eyjólfur litli fékk leir í dag. Hann sat í allan dag og leiraði og fanst voða gaman,mamma var svo að baka pizzu í kvoldmatinn þegar Eyjólfur kemur og segir "mamma, ég ætla líka að lave en pizzu" Hann er greinilega farinn að tala dönskuna í leikskólanum. Mamma hefur miklar áhygjur af því að hann eigi eftir að tala svona blöndu af Íslensku og dönsku,eins og svo mörg íslensk börn gera. en við vonum ekki.
17 dagar í að ég komi í heimsókn til Íslands, það verður alveg fáránelgt að koma í heimsókn til íslands. En ég ætla sko að njóta þess, ég fer sko bara bráðum að pakka niður, ég get svo svarið það. Ég er eiginlega alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera og held að ég setji listan hérna inn við fyrsta tækifæri.
Ég sakna þess svoldið að geta ekki talað í FRIENDS máli hérna, en ég, Inga Rós og Linda eigum eftir að gera það óspart þegar að ég kem.
En ég er farin í lúllið, reyna að ná þessari pest úr mér, og lesa smá í "Hvordan man træner en dreng" með mary kate og ashley olsen.
Jeg er så dygtig!
1 ummæli:
hlakka svo til þegar þú kemur..ég er bara að deyja hérna út tilhlökkun!
Skrifa ummæli