13.8.04

  • Frést hefur hingað í Danaveldið að hitabylgja sé á klakanum, ég vona bara að þið klakabúar njótið þess að hafa 20 stiga hita. Sjálfri finnst mér það ekki mikið og er longu hætt að kippa mér upp við ef að hitinn fer uppí 40 stig í sólinni á meðan að maður er innilokaður í skólanum. Alveg merkilegt hvað maður getur aðlagast nýjum hlutumm og umhverfi fljótt. maður er T.d farinn að drekka 2-4 lítra af donsku vatni á dag, ((ég kom því ekki niður alla fyrstu vikuna) vera í skólanum í þessum hita,þurfa að tala og hlusta á dönsku allan daginn er líka komið uppí vana hjá mér.(fyrstu dagana í skólanum var ég komin með hausverk í lok dagsins)

    Á fostudaginn eftir skóla þá tók ég lestina til Odense, þar á Banegarden beið hún Brynja eftir mér og við tókum strætó til Rosengardcenteret, sem er HUGE kringla þar í bæ. Þar Spásseruðum við í nokkra klukkustundir og keyptum eins og við myndum aldrei geta keypt fot aftur, þá sérstaklega í H&M. Rosalega er gaman að fara með einhverjum úr öðru landi að versla, því að þá þarf maður ekkert að spá í hvort að maður sé að kaupa alveg eins eða hvað.

    Svo núna var ég að koma heim úr þessu heljarinnar Teiti niðrí mosa, sem að ég get alls ekki kvartað undan. hitta íslendingana og svona...

    ORÐIÐ: Svekkjandi

    SNILLDIN:Amar, gaur sem að er með mér í bekk, hann talar svo mikið en maður skilur bara svona 3ja hvert orð sem hann segir, algjor steik ég og hann kobbi kongulóarbani getum sko hlegið endalaust af honum.

3 ummæli:

Inga Rós sagði...

Amar og kobbi konguloarbani???????!!!

Kristín Alma sagði...

jebbs Inga mín þetta eru skondnir strákar!!!

Inga Rós sagði...

hehehe oki ;) gaman ad vite =D