14.7.04

Haldiði að ég hafi ekki bara skrópað í vinnuna í morgun. Eða málið var eiginlega bara það að ég var með mígreni í nótt og í morgun þannig að ég leifði mér að sofa í morgun. En annars er bara allt rosalega gott að frétta af mér og mínum. Ég er bara að reyna að njóta alls þess góða sem að ísland hefur uppá að bjóða núna, því að það eru ekki nema 3 dagar þar til að ég flýg til Danaveldis.
ég tildæmis fór með Ingu Rós í bíó í gær og við skvísurnar létum auðvitað ekki bjóða okkur neitt minna en V.I.P Salinn. Myndin var góð, poppið ferskt gosið kalt og sætin þægileg.
Núna stendur birna á haus í eldúsinu því að hún og pabbi eru með kveðjuveislu hér í kvöld til heiðurs mér...

3 ummæli:

Inga Rós sagði...

Það vantar bara sængur til afnota í þessum sölum marr :Þ Shit þetta var nú þægilegt hehe :D

Inga Rós sagði...

hey kristín hvenær byrja áheyrnarprufrunar fyrir Søren og Sigmar Sørenssen??? :Þ

Nafnlaus sagði...

Núna ertu farin, núna ertu farin frá mér, hvar ertu núna, hvert liggur þín leið?
Sakna þín og skemmtu þér æðislega vel úti og vertu dulleg að blogga og segja okkur frá Danmörku
Ásta :*