10.6.04

Allt er gott sem endar ágætlega..

...eða það segi ég allavega. Ég er búin að fá einkunnirnar mínar og eru þær alveg bara skítsæmilegar, en maður getur þó alltaf gert betur, er það ekki? Útskriftin var á föstudaginn og mér fannst það ekki gaman, heldur bara sorglegt. Mig hefði ekki órað fyrir því að ég ætti eftir að sakna skólans,kennaranna,brúnu flísana og ljóta skítuga teppisins á göngunum...En ég sakna krakkanna þó mest, það var alltaf líf og fjör í garðaskóla þó að það hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Eiginlega var lífið í Garðakóla eins og versta sápuópera, Alltaf gerðist eitthvað skemmtilegt á hverjum degi, mis skemmtilegt þó!

En jæja lífið heldur áfram og ég er komin á fullt að vinna, Passa Stefán frá 8-6 á degin, mér finnst það nú bara fínt því að maður er svo frjáls að vera að passa svona, við erum alltaf að gera eithvað skemmtilegt, förum í sund á hverjum degi og göngutúra og margt skemmtilegt. Það er líf og fjör að fara með drenginn í sund, hann er alveg á við 3 sko.. ekkert smá fjörugur. Mér var nú heldur brugðið fyrsta skiptið sem að við komum útí laug, þá hljóp hann, kútalaus og stökk útí laugina(hann er tæplega tveggja ára) Ég hélt að ég myndi fá hjartaáfall, en svo komst ég að því að hann er bara svona flínkur í sundi að hann þarf ekki kúta ef að maður er að fylgjast með honum! mér finnst það æðislegt hvað hann er duglegur að fara sjálfur uppá bakkann og stökkva útí og fara í kaf. Svona eiga lítil börna að vera!:P

En núna þessa viku hefur verið heldur betur skrítið veðurfar í RVK og nágrenni. Maður vaknar við það að sólargeislarnir brjótast innum gluggan hjá manni og kítla mann í nefið, Svo labbar maður úti og hugsar þetta verður sólríkur dagur,ekki ský á himni og hreyfist ekki hár á höfði. En nei um það bil klukkan 9 er allt orðið skýjað! hvernig er hægt að gera manni þetta? Í gær var meira að segja komin rigning um 10 leitið þannig að ég og stefán fórum ekki í sund þann daginn. Svo fær maður fréttir af vinum og vandamönnum sem að sitja í próflestri úti í garði í 25-28 stiga hita í London og Köben..thiss (ég er reyndar að fara að flytja til DK...:P)
En kannski að ég sé hætt að kvarta núna því að veðrið er búið að vara þokkalegt í dag, sól og hiti en samt reyndar þessi leiðindargola. En það var frábært að fara í sund áðan, láta sólina skína á kroppinn og svona.

Á mánudaginn fer ég að vinna í unglingavinnunni, en ég verð ekki í þessu hefðbundna reyta arfa og raka saman gras, því að ég fékk inn á leikskóla, nánar tiltekið Lundarbóli, og verð þar frá 8:30-16:00 á dagin, sem er mjög fínt, en ég verð náttúrulega bara í einhvern mánuð, því að þá flytjum við út.

jæja best að fara að drífa sig útí sólina á meðan að litli stúfur sefur, ég kveð að sinni og segi bara Lifi ljósið eins og mér einni er lagið, bæ

2 ummæli:

Inga Rós sagði...

Lengi lifi Svampur Sveinsson muhahahaha :D

Kristín Alma sagði...

he "má" burn in hell!!!!