12.6.13

Rimmel London

Ég keypti mér naglalakk frá merkinu Rimmel London þegar ég var í Glasgow í síðustu viku. Get svo sannarlega mælt með þessum lökkum! Ég lakkaði á mér neglurnar fyrir viku síðan og lakkið hefur varla haggast af nöglunum á mér (ég vinn á leikskóla svo ég er ekkert að prinsessast allan daginn) og ég notaði ekkert base eða topcoat. Svo skemmir ekki fyrir að það var orðið þurrt á einni mínútu :)
Bara verst að ég held að þetta merki sé ekki fáanlegt hér á landi en ef þið eigið leið erlendis í sumar þá mæli ég með að þið kíkið eftir þessu merki þar.


2 ummæli:

Rut R. sagði...

fékkstu það í Boots?

Kristín Alma sagði...

Nei í apótekinu sem eg fór og keypti bumbukremið. Rimmel er til í stórmörkuðum bara, eins og maybeline og þannig :)