Þannig að ég fann til krukkuna góðu.
Fann svo til blúndubol sem ég átti og var frekar lítið notaður, skil það ekki.. :)
Tróð krukkunni í ermina, klippti til og bjó mig undir að skokka útí bílsskúr að spreyja. En..
Svo var þetta eitthvað bara svo sætt saman að ég ætla að hafa krukkuna með blúnduerminni á í smá tíma. En engar áhyggjur, þetta verður spreyjað - bara svona þegar ég nenni að fara útí kalda bílskúrinn minn :)
3 ummæli:
Hey ... þetta er bara flott sko :O) Viltu senda mér hina ermina ;O)
Kv, Mamiblue
Ég er einmitt alltaf á leiðinni að blúnduspreya kommóðuna inná baði.... læt kannski verða að því í sumar...afþví ég á ekki bílskúr! :)
Hehe já mamma, skipti á erminni og kertastjakanum þínum.
Rut: Já held það gæti verið flott :)
Skrifa ummæli