12.5.09

Jæja, hvar á maður nú eiginlega að byrja?
Tíminn flýgur áfram og ég búin að vera Íslendingur í 3 mánuði, sem segir okkur það að það eru 3 mánuðir þangað til ég kemst inní sjúkrakerfið. Sem betur fer hefur ekkert stórvægilegt komið fyrir mig þessa 3 mánuði en ég hef þurft að fara til heimilislæknis tvisvar og einu sinni til sérfræðings útaf þessari hrottalega skemmtilegu blöðrubólgu sem var að hrjá mig hérna í vetur og er um það bil milljónkalli fátækari. Núna er einmitt komin upp sú staða að ég þarf að fara til tannsa að láta rífa útúr mér fjóra jaxla og ég er næstum því komin á það að bíða með það í þrjá mánuði í viðbót til að þurfa ekki að leggja út fyrir annari milljón. Gaman gaman.
Annars erum við hress hérna í firðinum fagra. Höfum það ótrúlega gott í kreppunni og ekki yfir neinu að kvarta. Jú, nema kannski húsnæðisleysi, en íbúðin sem við vorum að leigja var seld ofan af okkur og núna kúldrumst við í kjallaranum á 350 fermetra húsinu sem elsta systir hans Jóns Péturs á. Doldið svona í anda Fritzl - fyrir þá sem hafa svoleiðis húmor. Neinei, væsir sko ekki um okkur hérna í kjallaranum á Eyrarveginum, enda erum við núna með svaka gott internet og allar hugsanlegar sjónvarpsstöðvar sem við höfðum ekki áður svo nú er atvinnuleysinginn bara komin inní nágranna og glæstar svo Eva greyið losnar ekki við okkur í bráð :)
Ég er ennþá gjöööðveikt dugleg í ræktinni. Keyri útí Ólafsvík 5 sinnum í viku til að fara í spinning og BodyPump. Er alveg orðin helköttuð og tönuð í drasl - eða þannig. Það skeður víst lítið ef maður fer heim eftir spinning og étur súkkulaði sem nægir ofaní heila afríkuþjóð. Maður fær nú samt sem áður prik fyrir að hreyfa sig myndi ég halda..

Jæja, fleiri fréttir koma síðar, vonandi. Gamla er að fara í sitt fyrsta framhaldsskólapróf á íslandi í lífinu og það í Íslensku takk fyrir. Danmerkurdvölin hefur ekki haft góð áhrif á málfræðikunnáttu mína get ég sagt ykkur svo það er spurning hvort maður taki þetta fyrsta framhaldsskólapróf á íslandi með trompi og skítfalli bara líka.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

um hvað ertu að tala... þú kemst strax inn í sjúkrakerfið ef að þú biður þá í DK að senda þér E-104 og sendir það á Tryggingastofnun og búið mál! við vorum viku að komast inn í sjúkrakerfið.... en annars ánægð með bloggið þitt..

kv. Brekamamma

Kristín Alma sagði...

Æji ég veit alveg. Langaði bara að tuða. Ég er búin að fá E-104 og það bara gleymdist í öllum látunum í flutningunum að senda það ;)

Nafnlaus sagði...

ég googlaði bara blogginu þínu :)
núna verð ég fastur lesandi :)

Rut R.