Ætla frekar bara að reyna að útbúa einhverja myndasíðu sem ég get þá bara linkað á. Hef reyndar ætlað mér það lengi, en ég er bara svo hrottalega tæknifötluð að það situr alltaf á hakanum því mér finnst þetta allt vera svo ó-iddíoddprúf. Sjáum hvað setur.
Ég kom heim frá Barcelona á föstudagskvöld, eftir ótrúlega skemmtilega ferð með Pabba, Móður minni í föðurætt, flestum systkinum mínum þeim megin og Ömmu Ölmu (eða ÖlmuÖlmu eins og Salkan segir). Átti ótrúlega góðan tíma með þeim. Takk fyrir mig!
Stoppaði voða stutt í Reykjavík. Rétt náði að kíkja á nýju frændsystkinin mín. Auði og litla Pjakk Óskarsson. Yndisleg. Jón Pétur brunaði líka í bæinn til að kveðja mig og skutla mér á flugvöllinn, en við náðum samt að horfa á Bjarka hlaupa 42 km í maraþoninu, kíkja í sund og snuddast í einhverju allskonar.
Sólarhring eftir að ég lenti í Keflavík var ég mætt þangað aftur á leiðinni til DK. Súrt, en Anna og Örn voru samt að fara út líka ásamt fleiri Horsens búum svo maður var ekki alveg einn í heiminum.
Síðan ég lenti í Horsens hef ég nú bara alveg verið að andast úr þreytu, bara eins og ég hafi ekki sofið í allt sumar. Sem er reyndar alls ekki raunin, því ég sef svo vel og mikið í Grundó að það hálfa væri hellingur.
Þetta var annars mega gott sumar. Þrátt fyrir að það hafi byrjað mjög seint. Efast heldur ekki um að gamlingjarnir mínir séu farnir að sakna mín, svo ég tali nú ekki um vinnufélagana á Dvaló.
Jæja, held ég láti þetta gott heita, verð að fara að koma mér í bælið hvað á hverju, enda síðasti dagur fyrir skólann á morgun. Ætla að eyða honum í eitthvað gáfulegt.

1 ummæli:
Bara að benda á að facebook er snilldarvettvangur til að setja inn myndir.
Skrifa ummæli