Nú hef ég komist að því hvað er í raun og veru átt við með þessu. Ég er að fara að kaupa 9 bækur sem eru allar svipaðar á þykkt og símaskráin. Er búin að reikna út hvað þetta kostar og það er ekki nema yfir 3.500 DKK!! Samkvæmt genginu þessa stundina eru þetta rétt tæpar 60.000 ISK. Þetta er fyrir utan stílabækur og möppur, sem er slatti af líka. Þetta er bara ein önn.
Hressandi!
Tók lestrarpróf í gær á dönsku í einhverjum studieteknik kúrs og les að meðaltali 19 línur á tveim mínútum. Ég ætla sem sagt ekki að gera neitt annað í vetur en að lesa. Getið ímyndað ykkur hvað ég er sló að lesa á dönsku "fræðimáli" því þessar 18 línur þarna miðast við einhverja auðvelda grein í einhverju blaði...
Þess ber að geta að ég les mjög hratt á Íslensku - er ekki algjör slúbert.
Þessi fylgir með í lokin. Uppáhöldsin mín á Grundfirskudögunum. RAUÐIR!
1 ummæli:
Elsku frænka hér er rule of thumb sem maður lærir með reynslunni. Þegar þú lest langa texta, hafðu þá penna við höndina og fylgdu með textanum um leið og þú lest. Betra ef penninn er með dökkum oddi.
Ef þú gerir þetta, þá lestu líklega svona helmingi hraðar.
Skrifa ummæli