Væl.
Kemst varla fyrir heima hjá mér vegna þess að ég á svo mikið af fötum. Samt er ég næstum farin að gráta því ég á ekkert til að fara í á morgun, fyrsta daginn minn í háskóla!
Sem sagt, frá og með morgundegiunum verð ég nemandi í markaðshagfræði. Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að fara í eitthvað nám sem innihéldi hagfræði í titlinum. Enda er það nú meira "markaðs" sem heillar mig.
Fór í sund í dag, sem er eiginlega mjög frásögurfærandi því ég fer aldrei í sund hérna. Hef farið þrisvar. Það var allt á einni viku núna í febrúar. En þetta er sem sagt í fyrsta skipti sem ég mátti vera að því að synda og komst ég að því að ég kann ekki að synda á dönsku. Stelpa sem stoppaði mig sagði að ég ætti að synda í hringi en ekki fram og til baka. Ég var ein á brautinni og sá ekki að þetta skipti nokkru máli, en það var greinilega stelpunni sem var tveim brautum frá mér hjartans mál að ég synti í hringi. Gafst því upp á að díla við tófuna og fór í pottinn eftir 500 metra.
Jæja, það er víst ekkert meira til að segja frá. Best að fara í háttinn svo ég verði ekki með bauga niður á tær í skólanum á morgun :)
2 ummæli:
Sjiii fyrsta barnið mitt komið í háskóla.. Stór dagur í dag elskan mín og þess vegna ákvað ég bara að fylgja þér að innganginum.....gangi þér vel núðla litla....júgógörl !!
til hamingju með þetta og gangi þér vel fyrsta daginn, orðin svo stóóóór;) en nú er ég orðin jafn tæknivædd og þú og komin með blogg! þetta var svolítið stórt afrek hjá mér:D haha
Skrifa ummæli