26.6.05

Til hamingju með afmælið amma Stína!!!


hmm, maður ætti kannski aðeins að segja ykkur hvernig er búið að vera hjá mér síðustu daga.
Ég kom til Bandaríkjana Miðvikudaginn 22.6.2005 að kvöldi til, eftir lengstu og erfiðustu flugferð sem að ég hef farið í, því að við vorum tvær fullorðnar með 5 börn á aldrinum 11, 3, 2, 11.mánaða og 5.vikna. Og skiljanlega voru þau orðin frekar pirruð á því að þurfa að sitja kyrr í svona langan tíma. En þetta hafðist allt og við komumst heil á höldnu til USA.
Það er alltaf brjálað að gera hjá mér, svo að þið verðið bara að afsaka það að ég hef ekki tíma til að hafa heimþrá eða svoleiðis, enda væri það líka bara rugl, því að ég hef það svo gott hérna. Krakkarnir voru mjög fljót að venjast mér, og taka mér mjög vel og ekkert vesen með það. Algjörar krúsídúllur þessi börn, verð að sína ykkur myndir þeim bráðum, en þau eru öll voða dökk, með dökkt hár og stór dökkbrún augu.
Nú, það er frekar heitt hjá okkur eða eitthvað á milli 35-40 stiga hita þegar að það er heitast. minnstu tvær skotturnar (11. mánaða og 5. vikna) eru bara á bleyjunni og alveg að steikjast úr hita. En við hin stærri getum allavega kælt okkur með að fara í vatnsslag með tvær garðslöngur eða demba okkur í ískalda sundlaug.
Jæja, ætli það sé ekki tími til að fara að sofa bráðum, enda klukkan að verða tíu...(merkilegt hvað maður verður þreyttur í svona hita...)
Bið að heilsa ykkur þarna á íslandi, danmörku og hvar sem að þið eruð í heiminum, og ég lofa að reyna að vera dugleg að skrifa um hvað ég er að gera hérna á daginn í ameríku.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

frábært að allt gangi svona vel,og auðvita voru þau fljót að venjast þér, þú ert æði. stórt knús frá okkur.
kv.
sæunn og co

Inga Rós sagði...

ohh hvað þú ert heppin að vera í svona miklum hita...hérna er bara skýjað og eilla rigning og bara e-ð ömurlegt veður! alla vegana gott að þú ert að skemmta þér vel krútta :*:)

Inga Rós sagði...

ohh hvað þú ert heppin að vera í svona miklum hita...hérna er bara skýjað og eilla rigning og bara e-ð ömurlegt veður! alla vegana gott að þú ert að skemmta þér vel krútta :*:)

Kristín Alma sagði...

tja, þetta er betra en kuldinn sem að var á íslandi þegar að ég var þar...brr;)

Nafnlaus sagði...

velkominn til usa - vertu í bandi sem fyrst.

pabbi

Nafnlaus sagði...

Sæl elsku Kristín,
Hafðu það voða gott í Ameríkunni. Við erum stax farin að sakna þín. Sumarið verður fljótt að líða. Ég vona að þú komir fljótt til Íslands aftur.
Stórt knús, Birna og börnin