SVINDL!
Fiðrildin eru farin og mín ekki ánægð með það. Ég var farin að kunna svo vel við þau, en þau koma örugglega aftur núna á morgun.
Já ég kem til ykkar í kuldan á íslandi á morgun. Sé fram á það að sofa ekkert alla helgina þar sem að það eru allir búnir að panta mig í heimsókn, djamm, heimsókn, djamm, næturheimsóknir (ég á að koma inn bakdyramegin og allt...) og ég veit ekki hvað og hvað. Ég verð reyndar nokkurnvegin munaðarlaus um helgina, þar sem að móðir mín verður fjarri góðu gamni í danmörku, og faðir minn verður að flytja inn í nýtt og betra húsnæði (þar sem að mer hefur verið lofað bleiku herbergi) En svona ef að heppnin er með mér þá fær Birna jafnvel bara að eiga mig um helgina, og kannski lengur ef að heppnin er með...henni.
Annars er ég aldeilis búin að skella mér í nokkrar fegrunaraðgerðir uppá síðkastið. Ég skellti mér á þriðjudaginn í vax, plokkun, litun og manicure, svo í gær fór ég í klippingu og strípur. Er alveg orðin vel ljóshærð, svo að núna vantar mig bara blá augu og þá er ég orðin voðalega norðurlandaleg.
En jæja, það verður púllað allnæter í nótt, því að ég hef ekki tíma til að sofa, þarf að pakka og læra fyrir dönskuprófið sem að er á morgun. Ég veit ekki alveg hvað ég var að pæla þegar að ég sagði já við að taka erfiðara levelið í dönskunni, því að dæmið sem að á að lesa og læra er ekkert smá erfitt, ég er með orðabókina á annari hvorri setningu og kann ekki að bera fram helminginn af þessum orðum og hugtökum. En við vonum bara það besta...
Annars þá sjáumst við bara á morgun, þá verð ég líklega orðin úthvíld eftir lestarferðina og flugferðina...
Þess má kannski geta að ég sleppti síðasta djamminu mínu í danmörku í bili, í kvöld. Til þess að vera heima að lesa. Ég var ekki vinsæl meðal vinana, en svona er þetta bara, maður verður stundum að forgangsraða.
6 ummæli:
Stolt af þer fyrir að læra á seinasta kveldinu þinu! bara drekka nóg af kaffi;) haha...vá hlakka til að sjá þig stelpa!;* bara góða ferð!:D
hehe, þetta kaffi er líka að gera sitt gagn!
eg held að ég fari bara ekkert að sofa fyrr en eftir helgi eða eitthvað, er svo glaðvakandi nuna og er búin að vera vakandi alla nóttina...
vissi ekki að þú værir með bloggsíðu, verð að bæta henni inn á bolggrúntinn sem ég fer alltaf á. Svo sendi ég þér nafnið á Spriklu 10 júlí. gangi þér allt í haginn í útlöndunum báðum og þú sendir okkur nú kveðju á síðuna okkar.
kveðja
Sæunn og co
jújú, búin að blogga í 3 ár næstum. Við erum svo tæknivædd hérna í stensballe sko ;)
En ég fylgist nú með ykkur og hlakka til að heyra nafnið hennar spriklu vinkonu minni :)
ohh gaman ð sjá þig skvííís;D þú svafst nú þarna hjá mér;D greinilega ekki búin að drekka mikið kaffi þá;) hah.. allavena.. brjálað djamm í vikunni/helgina næstu.. ójá!!! 17. júní á föst;) ertu game í að hoppa ofan í tjörnina í afturábak heljarstökki með 3faldri skrúfu?
helga ef þu hoppar i bleikum sundbol og með sundhettu..þá skal eg gefa þer hundraðkall;)
Skrifa ummæli