En það er nú bara gaman, ég er alveg uppfull tilhlökkunar og líður eins og þegar að ég var að fara til útlanda þegar að ég var lítil, þið vitið þegar að maður vaknaði um nóttina til að fara útá flugvöll.
Ég á eftir að gera alveg óteljandi hluti og er ekki að sjá þessa hluti framkvæmast á þessum 3 dögum sem að eru eftir hérna í DK. Sem er ekki gott því að þetta eru hlutir eins og að pakka niður og svona. Svo þarf ég að finna út aðferð til að eignast pening á þessum stutta tíma, þar sem að ég er svo blönk að ég á ekki krónu með gati. En þetta blessast allt vonandi.
Í kvöld er svo kynning í Handelsskolen, þar sem að ég þarf að gjöra svo vel að ákveða mig hvað ég ætla næsta ár, eða hvaða línu eða braut ég tek. Sem verður erfitt, því að allar línurnar eru mjög spennandi.
Annars þér var ég nú í enskuprófi í morgun, og fékk náttúrulega 10 á því, hvað annað??
Svo að ég lít nokkurnvegin svona út í dag...
2 ummæli:
haha 10:d litli proffinn minn:D me geta ekki beðið eftir að þú komir.. er ekki djamm á laugardaginn? þvíég þarf þá að taka mér frí á laugardagskvöldið og sunnudags morgninum? láttu mig vita skvís;D
úúú
ííí hlakka svo til þegar þú kemur :D en til hamingju með tíuna ;)
Skrifa ummæli